Endurgreiðslustefna
Síðast uppfært: 8. júlí 2026
1. Yfirlit
Pantanir eru afgreiddar af Paddle.com, sem er skráður seljandi (Merchant of Record) fyrir Markmedia. Endurgreiðslubeiðnum má beina til okkar eða til Paddle og eru þær afgreiddar í samvinnu við Paddle.
2. Mánaðaráskrift
- 14 daga endurgreiðsluréttur: sértu ekki ánægð(ur) með þjónustuna máttu óska eftir fullri endurgreiðslu fyrstu áskriftargreiðslunnar innan 14 daga frá fyrstu greiðslu.
- Áskrift má segja upp hvenær sem er og tekur uppsögnin gildi í lok yfirstandandi greiðslutímabils. Þegar greitt tímabil er hafið er það almennt ekki endurgreitt hlutfallslega.
- Ef þjónustan liggur niðri í lengri tíma vegna bilunar hjá okkur skaltu hafa samband — við leiðréttum það, t.d. með inneign eða endurgreiðslu.
3. Uppsetningargjald
Uppsetningargjald fæst endurgreitt að fullu ef hætt er við áður en uppsetningarvinna hefst. Eftir að uppsetningu er lokið og kerfið komið í notkun er gjaldið almennt ekki endurgreitt.
4. Hvernig óska ég eftir endurgreiðslu?
Sendu póst á orvar@markmedia.is með nafni fyrirtækis og kvittunar- eða pöntunarnúmeri frá Paddle. Endurgreiðsla fer á upphaflegan greiðslumáta; afgreiðslutími fer eftir greiðsluþjónustunni (yfirleitt 5–10 virkir dagar).
5. Lögbundin réttindi
Stefna þessi skerðir ekki réttindi sem kaupandi kann að eiga samkvæmt ófrávíkjanlegum lögum.