Markmedia
Endurgjöf frá viðskiptavinum — sjálfvirkt eftir hverja heimsókn.
Markmedia býr til hugbúnað fyrir íslensk þjónustufyrirtæki. Eftir hverja heimsókn sendir kerfið stutta könnun um að velja 0-10 í SMS. Kúnnar sem svara hárri tölu verða bent á að birta umsögn á Google Reviews, sem hefur gríðarleg áhrif í nútímanum varðandi markaðssetningu, traust og viðveru á netinu — ekki að gleyma hvaða fyrirtækjum gervigreindin mælir með.
InnskráningSvona virkar það
SMS eftir heimsóknina
Þegar viðskiptavinur hefur fengið þjónustu sendum við honum sjálfkrafa stutta könnun þar sem hann velur 0-10 í SMS. Hægt er að afþakka frekari skilaboð hvenær sem er.
Þú sérð öll svörin
Svörin safnast á stjórnborðið þitt í rauntíma — einkunnir, athugasemdir og þróun yfir tíma.
Óánægðir tala við þig fyrst
Lág einkunn fer beint til þín svo þú getur brugðist strax við. Þeir sem svara hárri tölu eru bent á að birta umsögn á Google Reviews.
Innifalið í áskrift
- Sjálfvirkar 0-10 kannanir í SMS eftir hverja heimsókn
- Stjórnborð með einkunnum, svörum og þróun yfir tíma
- Tilkynning samstundis þegar einkunn er lág
- Kúnnar sem gefa háa einkunn bent á að birta umsögn á Google Reviews
- Tengingar við bókunarkerfi, vefkróka, tölvupóst, CSV og Google Sheets
- Uppsetning og aðstoð á íslensku
Verð
Uppsetningargjald €339 (u.þ.b. 49.000 kr.) og síðan €199 á mánuði (u.þ.b. 28.800 kr.) fyrir hverja starfsstöð — engin binding.
Hafðu samband: orvar@markmedia.is